Skoðaðu málið
Síðan ég hóf sölu á Warming kremunum hefur kaupendahópurinn stækkað til muna.
Útferð og kláði+
Einkenni sveppasýkingar geta verið þykk, kekkjótt útferð frá leggöngum, þurrkur, særindi og mikill kláði. Orsökin getur verið gersveppurinn Candida albicans, sem er eðlilegur hluti af sveppaflóru legganganna og lifir þar yfirleitt án þess að valda skaða. Rakakrem getur stutt umhirðu við þurrki en kemur ekki í stað greiningar eða meðferðar við sýkingu.
Þurrar og sprungnar hendur+
Þurrar og sprungnar hendur geta meðal annars tengst psoriasis. Warming Basic kremið mýkir húðina og hentar við daglega umhirðu þurrar húðar.
Af hverju feitt krem?+
Ef um kláða og þurrk er að ræða á kynfærasvæði er mikilvægt að velja krem með sem fæstum innihaldsefnum og góðu fituinnihaldi. Fita er mikilvæg fyrir þurra húð.
Hver eru innihaldsefni kremanna?+
Engin aukaefni á borð við parabena, ýruefni, sýrustilla né litar- og lyktarefni. Inniheldur: Paraffinum liquidum, Cera Alba, Cetyl Palmitate og vatn. Skoðaðu ávallt innihaldslýsingu á umbúðum viðkomandi vöru.
